Velkomin á Grallaravefinn
Kisurnar Glingló og Dabbi og hundurinn Rex eru ekki bara skáldskapur. Þau eru rammíslensk og uppátækjasöm og eiga sér lifandi fyrirmyndir í Sandgerði. Bækurnar sem eru ætlaðar börnum á aldrinum 2-6 ára, gerast ýmist á tilteknum stöðum á landinu eða fjalla um tiltekið efni eins og t.d. jólin. Í bókunum kynna Grallararnir ungum lesendum m.a. ýmis bæjarfélög á landinu og benda á skemmtilega afþreyingu á hverjum stað sem kostar lítið nema úthaldið. Sögurnar eru í vísnaformi og vel til þess fallnar að auka orðaforða barna en einnig sagðar á einföldu máli fyrir yngstu lesendurna. Hér á vefnum okkar má svo finna ýmsa leiki, vísnahorn, litabók, uppskriftir og fleira. Skemmtileg afþreying fyrir litla grallara. |
Fjórða bókin um grallarana, Sprellað í sveitinni, er komin út.
Undir liðnum bækurnar má skoða sýnishorn úr bókinni og ummæli frá lesendum.






